Þróunarsjóður
Leikskólum, grunnskólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum í Reykjavík gefst kostur á að sækja um allt að 200 m.kr. til þróunar- og nýsköpunarverkefna skólaárið 2021-2022 frá skóla- og frístundaráði borgarinnar. Forsenda styrkveitingar er að verkefnin byggi á Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósið er virkni og þátttaka barna, fagmennska og samstarf. Grundvallarþættir stefnunnar eru fimm: félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði og skulu þróunar- og nýsköpunarverkefni tengjast einum eða fleirum þessara þátta og/eða endurspegla yfirskrift, leiðarljós og framtíðarsýn stefnunnar: Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.
A-hluti. 150 milljónum verður úthlutað til grunnskóla, leikskóla, frístundamiðstöðva og skólahljómsveita út frá einföldu og skýru umsóknarferli. Fjárhæðir styrkja eru ákveðnar út frá reiknireglu sem tekur til fjölda árlegra stöðugilda, barnafjölda og rekstrarumfangs. Umsóknarfrestur fyrir verkefni í A-hluta er til 15. mars 2021.
B-hluti. 50 milljónum verður úthlutað til stærri samstarfsverkefna. Í stærri samstarfsverkefnum verður gerð krafa um þverfaglegt samstarf á milli starfseininga s.s. eins og milli skólastiga, frístundamiðstöðva, skólahljómsveita eða annarra
skóla eða starfsstaða innan sem utan hverfis. Styrkir verði að lágmarki 4.000.000 og hámarki 8.000.000. Umsóknarfrestur fyrir verkefni í B-hluta er til 1. mars 2021.
Fyrirspurnir er hægt að senda á sfs@reykjavik.is