Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi

Hetjan mín ert þú – barnabók um Covid 19

Hetjan mín ert þú er barnabók sem er skrifuð um COVID19 faraldurinn.

Bók er gefin út af Rauða krossinum með það að markmiði að foreldrar eða aðrir sem starfa með eða sinna börnum fái tól til þess að ræða við börn um heimsfaraldurinn.

Bókin er til á fjölmörgum tungumálum; íslensku, ensku, pólsku, úkraínsku, bahasa malay, arabísku, spænsku, þýsku, tyrknesku, dönsku, frönsku, kínversku, portúgölsku, rússnesku, búrmísku, sinhala, albanísku, grísku, ítölsku, tamíl, búlgörsku, mongólsku, kóresku og lettnesku.

Tenging við menntastefnu Félagsfærni, Heilbrigði, Læsi
Gerð efnis Ítarefni, Kveikjur, Verkefni
Markhópur 6-16 ára og starfsfólk.
Viðfangsefni Covid 19

  • Notice: Undefined offset: 1 in /home/u4101menntastefn/public_html/wp-content/themes/menntastefna/single-tool.php on line 158
  • Nánar um tilurð bókarinnar

    Gerð var könnun hjá um 1700 foreldrum og börnum víðsvegar um heiminn til þess að meta andlegar og sálfélagslegar þarfir barna meðan á COVID19 stendur. Ramminn utan um efnistökin var unnin upp úr niðurstöðum könnunarinnar auk þess sem hún var prufukeyrð og endurbætt áður en hún var svo gefin út í endanlegri mynd. Hetjan mín ert þú er bók sem ætti helst að vera lesin af foreldri (eða kennara eða öðrum umönnunaraðila barna) fyrir barn eða lítinn barnahóp. Ekki er mælt með því að börn lesi bókina án stuðnings foreldra.


    Notice: Undefined offset: 1 in /home/u4101menntastefn/public_html/wp-content/themes/menntastefna/single-tool.php on line 158
Scroll to Top