Sjá hér að neðan nokkrar leiðir til að vinna með lagatexta og tónlistarmyndbönd og greina þá með nemendum í ljósi tilfinninga, samskipta og kynlífs.
Greining á lagatextum
-
Tónlist – tilfinningar, samskipti og kynlíf
Hægt er að skipta nemendum í litla hópa eða hafa þetta einstaklingsverkefni.
- Hver hópur/nemandi velur sér lag (innlent eða erlent) sem fjallar á einhvern hátt um ást, ástarsorg eða kynlíf. Nemendur lesa vel textann og rýna í innihaldið. Hvað er höfundur að segja? Er einhver saga þarna á bak við og hver er hún? Hvernig birtast samskipti í laginu? Hvaða tilfinningar er verið að tjá? Hvernig birtast hlutverk kynjanna?
- Kennari velur tvo til þrjá popplagatexta og tvo til þrjá rapptexta. Nemendur eiga í sameiningu að lesa textana og bera saman tilfinningarnar, samskiptin og söguna í textunum. Er einhver munur? Hver er helsti munurinn? Er talað á ólíkan hátt um kynin?
- Biðjið nemendur að finna tónlistarmyndbönd þar sem fjallað er á einhvern hátt um líkama, ást, ástarsorg eða kynlíf. Hvernig eru birtingarmyndir í myndbandinu, eru allir gagnkynhneigðir? Hafa konur annað hlutverk en karlar, ef svo er hvernig þá? Eru konur öðruvísi klæddar en karlar? Hvernig er líkamstjáning fólksins? Eftir að allir hafa rýnt í verkefnið er sniðugt að ræða heildarniðurstöðurnar yfir hópinn. Nemendur geta skilað af sér skriflega eða munnlega eða hvernig svo sem kennaranum/félagsmiðstöðvar starfsmanninum dettur í hug að geti verið góð leið til að ljúka úrvinnslunni.
Skiptið nemendum í hópa og biðjið þau að greina skilaboðin í textunum. Hverjar eru birtingarmyndir karlmennsku, kvenleika, gagnkynhneigðar eða hinseginmálefna. Hver eru hlutverk kynjanna? Hvernig er fjallað um ást? En kynlíf? Hvað finnst hópnum um boðskapinn/textann og af hverju? Biðjið hvern hóp að spila sitt lag fyrir bekkinn að loknu verkefni og segja svo frá niðurstöðum hópsins í kjölfarið. Bjóðið upp á umræður, eru hinir sammála eða ósammála, hvers vegna eða hvers vegna ekki?
Tonight’s The Night (Gonna Be Alright)“ Rod Stewart
Stay away from my window
Stay away from my back door too
Disconnect the telephone line
Relax baby and draw that blindKick off your shoes and sit right down
Loosen off that pretty French gown
Let me pour you a good long drink
Ooh baby don’t you hesitate causeTonights the night
It’s gonna be alright
Cause I love you girl
Ain’t nobody gonna stop us nowC’mon angel my hearts on fire
Don’t deny your man’s desire
You’d be a fool to stop this tide
Spread your wings and let me come insideTonights the night
It’s gonna be alright
Cause I love you girl
Ain’t nobody gonna stop us nowDon’t say a word my virgin child
Just let your inhibitions run wild
The secret is about to unfold
Upstairs before the night’s too oldTonights the night
It’s gonna be alright
Cause I love you woman
Ain’t nobody gonna stop us now
Notice: Undefined offset: 1 in /home/u4101menntastefn/public_html/wp-content/themes/menntastefna/single-tool.php on line 158