Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur markað sér þá stefnu að vera leiðandi í þátttöku í alþjóðasamstarfi á sviði mennta- og æskulýðsmála með því að styðja við virka þátttöku grunnskóla, leikskóla og frístundamiðstöðva í evrópskum samstarfsverkefnum. Meðal þeirra aðgerða sem farið hefur verið í til að ná því markmiði er að ráða verkefnastjóra alþjóðasamstarfs og styrkja sem hefur það hlutverk að styðja við þátttöku í alþjóðasamstarfi.
Starfsmenn og stjórnendur hjá Skóla- og frístundasviði eru hvattir til að hafa samband við Hjört Ágústsson, verkefnastjóra alþjóðasamstarfs og styrkja, og leita aðstoðar við sókn í bæði innlenda og erlenda styrki. Hægt er að óska eftir aðstoð við mótun verkefna, vinnslu umsókna, umsýslu verkefna auk úrvinnslu og skýrslugerðar.
Yfirlit yfir alþjóðaverkefni SFS
Heildarstyrkir til alþjóðaverkefna í umsjón verkefnastjóra alþjóðasamstarfs og styrkja frá árinu 2019 eru 114.881.148 kr.
Í þessu verkefni mun hópur 16 starfsmanna í frístundamiðstöðvum og félagsmiðstöðvum frá Reykjavíkurborg hitta finnska sérfræðinga í stafrænu æskulýðsstarfi og heimsækja félagsmiðstöðvar og æskulýðsstarfsfólk í Helsinki til að komast að því hvernig þau hafa unnið með rafíþróttir í æskulýðsstarfi. Gert er ráð fyrir að fara í ferðina í október 2020.
Þátttakendur: Íslensku þátttakendurnir eru æskulýðsstarfsmenn frá öllum 5 hverfunum í Reykjavík auk sérfræðinga frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Samstarfsaðilar: Verke, sérfræði-miðstöð um stafrænt æskulýðsstarf Styrkur: €12.718 – 1.750.000 kr.
Verkefnið fól í sér ferð 12 starfsmanna frá Reykjavíkurborgar í September 2019 til Angered hverfisins í Gautaborg. Markmið verkefnisins var að kynnast götu- og leitarstarfi með ungu fólki og til sækja þekkingu sem hægt er að nýta til að bæta stefnumótun borgarinnar þegar kmeur að sýnilegu starfi fyrir og með ungu fólki. Sérstaklega var horft til hvernig æskulýðsstarfsmenn geta verið sýnilegir þegar haldnir eru stórir viðburðir í borginni til að auka öryggi ungs fólks.
þátttakendur: Íslenskir þátttakendur í verkenfinu voru 12 talsins og komu þeir frá Skóla- og frístundasviði, Velferðarsviði, Umhverfis- og samgöngusviði, Menningar- og ferðamálasviði og skrifstofu borgarstjóra. Auk þeirra tóku 2 fulltrúar frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þátt í verkefninu. Samstarfsaðilar: Gautaborg Styrkur: €7.940 – 1.090.000 kr.
Markmið verkefnisins var að auka gæði náms svo allir nemendur nái eins góðum framförum og kostur er. Með framkvæmd verkefnisins var ætlunin að auka fagþekkingu stjórnenda og lykilstarfsmanna í fjórum þekkingarskólum í hugmyndafræði og framkvæmd leiðsagnarnáms svo að þeir verði betur í stakk búnir að taka að sér leiðtogahlutverk og í framhaldinu styðja við grunnskóla í borginni. Heimsókn í 4 grunnskóla í London veitti staðfestingu á því að leiðsagnarnám getur skilað miklum árangri og veitti ómetnanlegt vegnanesti.
þátttakendur: Þátttakendur frá Reykjavíkurborg í verkefninu voru 18 talsins og komu þeir frá Hlíðaskóla, Kelduskóla, Dalskóla, Hamraskóla og skrifstofu Skóla- og frístundasviðs. Samstarfsaðilar: Ardleigh Green Junior School auk þriggja annarra skóla í London. Styrkur: €22,865 – 3.230.000 kr.
Grunnhugmyndin að baki þessa verkefnis var að auka aðgengi stjórnenda og starfsmanna á leikskólum Reykjavíkurborgar að starfsþróun í Evrópu. Leikskólarnir sem tóku þátt í verkefninu sendu starfsmenn sína á fjölbreytt námskeið í Evrópu. Hluti verkefnisins fól einnig í sér styrk fyrir starfsfólk Réttindaleikskóla til að sækja ráðstefnuna Barnrättsdagarna í Svíþjóð.
þátttakendur: Þátttakendur frá Reykjavíkurborg í verkefninu voru 30 talsins og komu þeir frá Múlaborg, Kvistaborg, Austurborg, Grandaborg, Geislabaug og skrifstofu Skóla- og frístundasviðs. Samstarfsaðilar: Erasmus+ námskeiðshaldarar í Hollandi, Ítalíu og Bretlandi auk ráðst Styrkur: €48.090 – 6.780.690 kr.
Verkefnið fól í sér tvær ferðir starfsmanna á skólasöfnum í 6 grunnskólum. Í fyrri ferðinni var farið á alþjóðlega ráðstefnu bókasafnsfræðinga á skólabókasöfnum sem haldin var í Króatíu í október 2019. Seinni ferðin, haustið 2020, var námsheimsókn til Stokkhólms þar sem heimsótt voru fyrirmyndar skólabókasöfn til að kynna sér nýjustu stefnur og strauma.þátttakendur: Þátttakendur frá Reykjavíkurborg í verkefninu voru 13 talsins og komu þeir frá Selásskóla, Fossvogsskóla, Foldaskóla, Háteigsskóla, Háaleitisskóla, Austurbæjarskóla og skrifstofu Skóla- og frístundasviðs. Samstarfsaðilar: Alþjóðasamtök skólabókasafna og VRS Vasastan og Glömtaskolen í Stokkhólmi. Stykur: €25.130 – 3.543.330 kr.
Verkefnið fól í sér heimsókn æskulýðsstarfsmanna frá Lundi í Svíþjóð til Reykjavíkurborgar. Markmiðið var að kynnast fjölbreyttu æskulýðsstarfi í Reykjavíkurborg með áherslu á að skiptast á reynslu af því að vinna með ungu fólki sem býr við færri tækifæri. Hópurinn heimsótti Frístundamiðstöðvarnar Tjörnina og Miðberg þar sem haldnar voru vinnusmiðjur með starfsmönnum félagsmiðstöðva í borginni. Auk þeirra hittu þau fjölda annarra æskulýðsstarfsmanna í borginni ásamt því að kynna starfsemi sína í Lundi fyrir áhugasömum á lokaráðstefnu verkefnisins.þátttakendur: Þátttakendur frá Reykjavíkurborg í verkefninu voru um 50 talsins en 13 starfsmenn frá Lundi komu til Reykjavíkur sem hluti af verkefninu. Samstarfsaðilar: Fritid Centrum, Lunds kommun Styrkur: €15.756 – 2.221.596 kr.
Í febrúar 2019 fór 17 manna hópur frá Reykjavíkurborg í 4 daga ferð til Lundar og Malmö í Svíþjóð. Í ferðinni kynnti hópurinn sér frístunda og félagsmiðstöðvastarf Í Lundi og Malmö almennt og kynnti sér sérstaklega starfsemi fyrir fatlaða unglina. Þau kynntu einnig starfsemi sértækra félagsmiðstöðva og vakti ferðin mikla lukku.þátttakendur: Hópurinn samanstóð af lykilstarfsfólki frá öllum sértækum félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar auk deildarstjóra unglingastarfs frá frístundamiðstöðvum borgarinnar. Samstarfsaðilar: Fritid Centrum, Lunds kommun auk Arena 305 og Tegelhuset í Malmö. Stykur: €14,940 – 2.060.000 kr.
Markmið verkefnisins var að kynnast gæðum í starfi Sant Andreu Jazz Band og hvernig þeim er náð með sérstöku tilliti til þess hvernig aðferðum er beitt í hópkennslu og hljómsveitarstarfi. Til að ná fram þeim markmiði var farið í mjög skemmtilega og lærdómsríka ferð til Barcelona í febrúar 2020 til að kynnast starfseminni auk þess sem fyrirhugað er að bjóða Joan Chamorro stjórnanda Sant Andreu Jazz Band að halda tveggja daga námskeið fyrir starfsmenn skólahljómsveita í Reykjavík haustið 2020.þátttakendur: 17 stjórnendur og starfsmenn úr öllum skólahljómsveitum borgarinnar tóku þátt í ferðinni til Spánar og gert er ráð fyrir 40 þátttakendum frá skólahljómsveitunum á námskeiðinu á Íslandi. Samstarfsaðilar: Associacio Sant Andreu Jazz Band, Barcelona Styrkur: €20.382 – 2.873.862 kr.
Aðalmarkmið verkefnisins var að efla þekkingu starfsmannahópsins í unglingastarfi í Frístundamiðstöðinni Miðbergi á vinnu með börn og unglinga með fötlun og þeim sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Farið var í þriggja daga ferð til Tallinn í Eistlandi í febrúar 2020. Þar fengu þau nokkra fyrirlestara og kynningar um öll málefni og fóru í vettvangsheimsóknir í félagsmiðstöðvar, “hobby schools” og skóla sem þekktir eru fyrir að tengja vel saman formlegt og óformlegt nám.þátttakendur: Í heildina voru 47 þátttakendur í verkefninu. Þeir voru 32 starfsmenn í unglingastarfi í Miðbergi auk 15 starfsmanna úr æskulýðsgeiranum í Eistlandi. Samstarfsaðilar: Esti ank – Samtök félagsmiðstöðva í Eistlandi Stykur: €24,080 – 3.395.280 kr.